Lóurimi 23, 800 Selfoss
79.900.000 Kr.
Raðhús
4 herb.
148 m2
79.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1984
Brunabótamat
77.000.000
Fasteignamat
71.700.000

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar kynnir eignina Lóurimi 23, 800 Selfoss, steinsteyt raðhús með sambyggðum bílskúr í rótgrónu hverfi á Selfossi. Birt stærð eignarinnar er 148.3 fm. og skiptist í  117.4fm íbúða og  30,9fm bílskúr.
Að innan skiptist eignin í forstofu, borðstofu og eldhús í opnu rými með uppteknu lofti og gluggum sem hleypa birtu inn í rýmið. Viðarlituð eldhúsinnrétting með svartri borðplötu og hvítum veggflísum á milli borðplötu og eftri skápa. Opið er á milli borðstofu/eldhús og í stofu. Eignin telur 3 svefnherbergi og þvottahús með hurð út í bakgarð. Parket á gólfi, ljóst viðarlitað parket á eldhúsi, borðstofu, stofu og aðalrými. Dökkt parket á svefnherbergjum. í Þvottahúsi eru hvítar flísar á gólfi. Flísar á gólfi og veggjum á baðherbergi. Baðherbergið var endurnýjað árið 2004, hiti settur í gólf og lagnir endurnýjaðar. Útgengt út í garð úr stofu á litla hellulagða verönd.

Bílskúrinn er 30fm með afstúkaða geymslu og geymsluloft yfir hluta. Hægt að ganga út í bakgarð frá bílskúr. Nýleg bílskúrshurð og bílskúrshurðaopnari. Löng hellulögð innkeyrsla og steypt stétt að aðalinngang. Hvítar flísar eru á gólfi.

Eignin hefur verið máluð reglulega að innan sem utan undanfarin ár og fengið gott viðhald. Nýtt bárujárn sett á þak árið 2014, þá var einnig skipt um timbur að hluta og settur nýr dúkur á allt þakið. Skjólgirðing á milli garða. Í haust voru settir nýir þéttilistar í alla glugga og útihurðir á eigninni.

Eignin er staðsett í mjög grónu hverfi, miðsvæðis á Selfossi, en Lóuriminn er botnlangagata. Stutt frá grunnskólunum Vallarskóla og Sunnulækjarskóla, Fjölbrautarskólanum, íþróttarsvæðinu og í göngufæri frá miðbænum á Selfossi. 

Nánari upplýsingar veitir Kristófer Ari Te Maiharoa Lögfræðingur og nemi til löggildingar fasteignasala, í síma 6956134, tölvupóstur [email protected].

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 50.000 + vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.

Nánari upplýsingar veita Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali [email protected] - s: 416 2220 - gsm: 894 3209  eða Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og nemi til löggildingar fasteignasala [email protected] s: 416-2223, gsm: 695 6134

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.