Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar hefur opnað nýjar heimasíður fyrir lögmannsstofuna og fasteignasölu stofunnar LÓB fasteignir. Ólafur.is er útbúin af OK en lóbfasteignir er útbúin af thinksoftware.
Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar tekur að sér allskyns fjölbreytt lögfræðileg verkefni og álitamál og leitast við að veita áreiðanlega ráðgjöf byggða á reynslu, fagmennsku og persónulegri nálgun. Sérhæfing stofunnar er á sviði eignarréttar og nær meðal annars til landamerkjamála, landskiptamála, ættliðaskipta, jarðarmála, jarðamat og fasteignamat, búskipti og margt fleira.
Stofan starfrækir einnig fasteignasölu undir heitinu LÓB fasteignir sem veitir lögfræðilega sérþekkingu og faglega fasteignasöluþjónustu á einum stað, sérhæfing fasteignasölunnar er einkum sala á bújörðum og landeignum, en einnig á fasteignum og íbúðarhúsum. Þá hafa starfsmenn LÓB sérhæft sig í verðmati á bújörðum og aðstoðað marga bændur um land allt við ættliðaskipti.
Við erum gríðarlega ánægð með nýju síðurnar og byrjum því árið 2026 af krafti.

