Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar hefur haft á sölu í sumar Lindarbraut 4 á Laugarvatni. Húsið er reisulegt og rúmgott atvinnuhúsnæði á besta stað með fjölbreytta möguleika til rekstrar, þjónustu, gisti- eða menntatengdrar starfsemi. Eignin stendur á bökkum Laugarvatns og er glæsilegt útsýni yfir vatnið. Eignin er samtals 3.353 fm og stendur á 5.977 fm leigulóð, sem skipulögð er sem viðskipta- og þjónustulóð. Í eigninni hefur fjölbreytt starfsemi verið rekin í gegnum tíðina, meðal annars Húsmæðraskólinn á Laugarvatni, starfsemi Íþróttaháskólans á Laugarvatni og Hótel Edda yfir sumartímann um árabil.

Kynnið ykkur eignina nánar á heimasíðu fasteignasölu okkar lobfasteignir.is og hafið samband við Kristófer til þess að fá nánari upplýsingar eða til þess að bóka skoðun.