Samkvæmt dómi Héraðsdóms Vestfjarða er jörðin Horn, á Hornströndum öll eignarland. Var úrskurður óbyggðanefndar því felldur úr gildi að hluta, en nefndin taldi Hornbjarg þjóðlendu, þar sem það hafi verið talið almenningur. Dómurinn féllst ekki á það, og tók með þvi undir kröfur umbj okkar. Vísað var til landamerkjarbréfs um jörðina og eldri heimilda m.a. Landnámu. Dómurinn mat það svo að þó heimild til að síga í bjargið hafi á vissum stöðum þess verið öllum heimil, þá væri þar um nýtingarrétt að ræða, sem ekki hefði áhrif á eignarréttarlega stöðu jarðarinnar.
Þetta er áhugavert mál, með nokkra sérstöðu. Þeim fer nú að fækka þjóðlendumálunum hjá mér- en óbyggðanefnd hefur nú lokið störfum. Eitthvað er þó eftir að málum hjá dómstólunum.
Framundan er hinsvegar að hnitsetja landamerki jarða á Íslandi skv. nýjum landamerkjalögum. Við tökum öll slík mál að sjálfsögðu að okkur.
Mynd fengin af mbl.is

