Brúnavegur 8, 806 Selfoss
32.000.000 Kr.
Sumarhús
0 herb.
56 m2
32.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1987
Brunabótamat
26.800.000
Fasteignamat
27.550.000

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar kynnir eignina Brúnavegur 8, 806 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 220-5736 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Brúnavegur 8 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 220-5736, birt stærð 56.9 fm. sem stendur á leiglóð í landi Úthlíðar.Í Úthlíð  er rekinn veitingastaður og 9 holu golfvöllur. Öryggishlið er á sumarhúsasvæðinu og er bústaðurinn innan þess svæðis.  

Um ræðir fallegt timburhús 57m2 að grunnfleti byggt 1987. Húsið er klætt með láréttri vatnsklæðningu- vel málað. Góðir pallar umhverfis húsið og heitur pottur ( rafmagns). Járn á þaki. Þakið þarfnast málningar. Að innan er húsið panelklætt með spónaparketti á gólfum. Svefnloft fyrir 2-3. Frárennsli og rotþró var endurnýjað árið 2007. Búið er að skipta um hluta af rúðunum undanfarin ár.
 
Eignin skiptist í anddyri, stofu/skála, eldhús með upprunalegri innréttingu, baðherbergi og 2 svefnherbergi. Svefnpláss fyrir 6-7 i húsinu – upptekið loft, panelklætt.  Kamína í stofunni með strompi. Geymsla er undir pallinum.
Rafmagnskynding í húsinu – tölvustýrð. Kalt vatn frá veitum. Fallegt barnahús fylgir- lóðin er leigulóð, vel gróin á kyrrlátum stað.  Húsgögn geta fylgt.

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Björnsson Hrl. og lögg.fast, í síma 8943209, tölvupóstur [email protected] og Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og nemi til lögg. fasteignasala, í síma 6956134 og [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LÓB fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Nánari upplýsingar veita Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali [email protected] - s: 416 2220 - gsm: 894 3209  eða Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og nemi til löggildingar fasteignasala [email protected] s: 416-2223, gsm: 695 6134

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.