Vörðubrúnir 10, 806 Selfoss
39.900.000 Kr.
Sumarhús
4 herb.
64 m2
39.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2005
Brunabótamat
41.000.000
Fasteignamat
34.700.000

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar kynnir eignina Vörðubrúnir 10, 806 Selfoss, sumarhús á leigulóð í Úthlíðarskógi, biskupstungum, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 227-9671 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Vörðubrúnir 10 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 227-9671, birt stærð 64.9 fm. Eignin er klædd að utan með liggjandi timbur panel klæðningu. Bárujárn á þaki. Stór pallur er við eignina, sem nær nánast í kringum hana alla með heitum potti og 2 geymsluskúrar, annar upphitaður um 10fm. Eignin stendur ofarlega í sumarbústaðarhverfi Úthlíðar og því mikið næði og frábært útsýni.

Gólf er flísalagt í sameiginlegu rými, eldhúsi og baðherbergi en parket á gólfi í svefnherbergjum og svefnlofti undir súð. Á veggjum er hvíttuð panel klæðning. Stofa og eldhús eru í sameiginlegu rými, hátt til lofts og uppgengt upp á svefnloft frá því rými. Hvít eldhúsinnrétting í eldhúsi með viðarplötu og einnig hvít innrétting með viðarplötu á baðherbergi. 

Óhindrað útsýni er úr húsinu til fjalla og yfir nærsveitir en fyrir ofan húsið er Miðfell og Högnhöfði.

Eignin er í góðu ástandi og vel við haldin. Steyptir dregarar undir húsi en steyptar undirstöðusúlur undir palli

Skipulag eignar:
Forstofa:
Lítil flísalögð forstofa.
Svefnherbergi: 2 svefnherbergi með parketi og hvíttuðum panel á veggjum.
Svefnloft: parket á gólfi, hvíttaður panill á veggjum, gluggi á gafli með fallega fjallasýn. Svefnloft undir súð.
Stofa: flísar á gólfi, hvíttaður panill á veggjum. Útsýni til fjalla frá stofu og palli.
Eldhús: hvít innrétting með viðarplötu, helluborð og innbyggður ofn.
Baðherbergi: Sturta og tengi fyrir þvottavél. Útgengt út á pall frá baðherbergi.
Geymsla: Rúmgóð geymsla inni í húsi og 2 geymsluskúrar á palli.

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Björnsson Hrl. og lögg.fast, í síma 8943209, tölvupóstur [email protected]. og Kristófer Ari, lögfr. og nemi til löggildingar fasteignasala, í síma 695-6134, [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 50.000 + vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.

Nánari upplýsingar veita Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali [email protected] - s: 416 2220 - gsm: 894 3209  eða Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og nemi til löggildingar fasteignasala [email protected] s: 416-2223, gsm: 695 6134

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.