Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar er fjölskyldufyrirtæki staðsett við Eyraveg 15 á Selfossi. Eigandi stofunnar er Ólafur Björnsson lögmaður en Ólafur hefur starfað við lögmennsku frá árinu 1990, á Selfossi frá 1993, stofnaði stofuna í febrúar árið 2022 ásamt syni sínum, Skúla Geir Ólafssyni. Í maí 2022 hóf tengdasonur Ólafs, Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, störf á stofunni. Sumarið 2025 var svo ráðinn nýr fulltrúi á stofuna, Ragnheiður Björk Guðmundsdóttir, lögfræðingur.
Lögmannsstofan tekur að sér fjölbreytt lögfræðileg verkefni og álitamál og leitast við að veita áreiðanlega ráðgjöf byggða á reynslu, fagmennsku og persónulegri nálgun. Sérhæfing stofunnar er á sviði eignarréttar og nær meðal annars til Landamerkjamála, Landskiptamála, Ættliðaskipta, Jarðarmála, Jarðamat og fasteignamat, Búskipti og margt fleira. Stofan tekur þó jafnframt að sér mál á öðrum réttarsviðum, svo sem Sakamál o.fl.
Stofan starfrækir einnig fasteignasölu undir heitinu LÓB fasteignir sem sameinar lögfræðilega sérþekkingu og faglega fasteignasöluþjónustu á einum stað, sérhæfing fasteignasölunnar er einkum sala á bújörðum og landeignum, en einnig á fasteignum og íbúðarhúsum.
Sem fjölskyldufyrirtæki leggjum við áherslu á persónulega og skjótvirka þjónustu þar sem hagsmunir skjólstæðinga eru ávallt hafðir í fyrirrúmi. Við nálgumst hvert mál af kostgæfni, hlustum á þarfir viðkomandi og leitum lausna sem tryggja réttindi og hagsmuni þeirra sem til okkar leita. Markmið okkar er að vera traustur samstarfsaðili – hvort sem um er að ræða einföld álitaefni, flókin lögfræðimál eða ráðgjöf í fasteignaviðskiptum.




