Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar hefur á sölu Fylgd útfararþjónustu. Fylgd er rótgróið og traust fyrirtæki í útfararþjónustu, staðsett á Selfossi með þjónustusvæði á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu. Fyrirtækið var stofnað árið 1995 og hefur starfað við góðan orðstír frá upphafi.

Fylgd er stærsti aðilinn í útfararþjónustu á Suðurlandi. Fylgd leggur ríka áherslu á trausta, persónulega og faglega þjónustu við aðstandendur þegar áföll verða. Fyrirtækið sinnir öllum helstu þáttum útfarar, þar á meðal ráðgjöf og skipulagningu.

 

Lykileiginlegar fyrirtækisins:

  • Langvarandi rekstur í 30 ár og stöðug eftirspurn í þjónustu
  • Sterk staða á markaði á Suðurlandi og nágrenni með þekkt vörumerki og gott orðspor.
  • Heildstæð þjónusta frá ráðgjöf og skipulagningu til framkvæmdar útfara.
  • Áherslu á sérsniðna og virðulega þjónustu.
  • Möguleiki á leigu á húsnæði til að byrja með, sem auðveldar nýujum eiganda að taka við og halda áfram rekstri.

Tækifæri fyrir nýjan eiganda:

Tækifæri fyrir nýjan eiganda felast í stöðugri þjónustuþörf óháð árstím eða efnahagsástandi, sem tryggir fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi. Fyrirtækið býr jafnframt yfir rótgrónu tengslaneti við prestþjónustu, kirkjur og birgja á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu, sem skapar styrka stoð í daglegum rekstri. Með fyrirtækinu fylgja vel skilgreindir verkferlar, traust birgðatengls og hefðbundinn búnaður útfararþjónustu þ.m.t. 3 sérútbúnir bílar. Jafnframt getur fylgt húsnæði undir starfssemina, til leigu eða kaups.

Nánari upplýsingar á [email protected], eða á skrifstofu Lögmannsstofu Ólafs Björnssonar að Eyravegi 15, 800 selfoss. Upplýsingar um ársreikninga eða veltu eru veittar á skrifstofu, ekki í gegnum tölvupóst.

 

Verð: Tilboð, uppl. um verðhugmynd hjá [email protected]