Fyrir liggur frumvarp Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, þar sem gert er ráð fyrir því að landeigendur geti ekki komið í veg fyrir þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir með því að neita að veita leyfi fyrir framkvæmdum á landareignum sínum. Sjá frétt á mbl.
Ég tel mikilvægt að ráðherrann lesi stjórnarskrána vel. Ég tek undir með Trausta, formanni Bændasamtakanna, að það ber að varast að þrengja að stjórnarskrávörðum réttindum borgaranna.
72. gr.
[Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir. Með lögum má takmarka rétt erlendra aðila til að eiga fasteignaréttindi eða hlut í atvinnufyrirtæki hér á landi.] 1)
1)L. 97/1995, 10. gr.
Við höfum mörg dæmi úr dómaframkvæmd Hæstaréttar þar sem eignarnámi hefur verið hafnað vegna þess að ekki var sannað framkvæmdin væri þjóðhagslega nauðsynleg, eða að fara mátti aðrar leiðir til að ná markmiðinu fram.
Ólafur Björnsson, hæstarréttarlögmaður.

