Forsætisráðuneytið stendur fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Vatnaskil í þjóðlendumálum.Á ráðstefnunni sem haldin verður fimmtudaginn 12. mars í Safnahúsinu við Hverfisgötu verður fjallað um málefni þjóðlenda en þau tímamót urðu í desember sl. að óbyggðanefnd kvað upp síðustu úrskurði sína. Nefndin hefur þar með lokið því verkefni sínu sem hófst 1998 að fjalla um mörk þjóðlenda og eignarlanda á landinu öllu.

Ólafi Björnssyni var boðið að taka þátt í pallborðsumræðum um málsmeðferð óbyggðanefndar, sem hann þáði, en Ólafur Björnsson hefur unnið ötullega að því að gæta hagsmuna landeigenda í þjóðlendumálum frá upphafi. Starfsmenn LÓB mæta á ráðstefnuna og skrifstofa Lögmannsstofu Ólafs Björnssonar því lokuð fimmtudaginn 12. mars.